Sunday, October 05, 2003

Á föstudagskvöldið þá kíkti ég í Norður-kjallarann (MH) og sá Maus sem voru nokkuð góðir. Þeir voru að halda uppa svokallað afmæli því þeir spiluðu sína fyrstu tónleika fyrir 10 árum og 2 dögum. Lokbrá hituðu upp ásamt hljómsveit Norton sem spilar svona gleði-electro rokk sem var bara nokkuð hressandi. Svo í gærkvöldi fór ég á tónleika á Gauknum með Hundred Reasons sem voru mjög góðir. Dáðadrengir voru fyrstir á svið og voru með helvíti skemmtilegt sett og Mínus stigu á stokk á eftir þeim og voru þeir ÞRUSU góðir. Mjög sáttu með kvöldið, ég vona þú hafir verið þarna !!! Myndir aðeins seinna (plássið mitt er búið as I write)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home