Sunday, September 26, 2004

Á föstudag fór ég á tónleika sem ég er búinn að hlakka til að fara á í um mánuð..

Minus The Bear heitir hljómsveitin (www.minusthebear.com) - Þetta er Indoe rokkað band frá Bandaríkjunum.

Ég tók margar margar myndir og video. Ég bý til smá videoclip og set hingað bráðlega.


MINUS THE BEAR

Saturday, September 11, 2004

Meðan ég sat hér í síðdeiginu að slappa af rakst ég á andskotans SNILLD!
Ég var í fyrsta sinn að renna Medúlla með Björk í gegn og seinasta lagið á
þeirri snilldar skífu er ótrúlega gott.
Meistarinn Rahzel gerir BEAT-IÐ undir af stakri snilld, Mike Patton gerir
önnur hljóð og hún Björk syngur undir, það er ekki hægt að lýsa þessu
lagi svo ég skipa öllum að kaupa sér þessa snilldar skífu strax. Systir
mín benti mér á lag númer 6 á disknum sem heitir "Who Is It?" sem er
líka ótrúlega gott.

Tuesday, September 07, 2004

Hér er eitt líffræði verkefni sem ég gerði, það var um mig og umhverfið í kringum mig.

UMHVERFI

Monday, September 06, 2004

LOKSINS! LOKSINS! Kom frá London/Leeds rétt fyrir byrjun september og fór beint í skólann... oh fokk hvað er leiðinlegt að skrifa, geri það við betra tækifæri. hér eru myndir - næst kemur ferðasaga


London/Leeds